Fotbolti.net
30.01.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Brighton lánar Schelotto til Chievo út tímabilið (Staðfest)

Brighton lánar Schelotto til Chievo út tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Brighton

Brighton hefur ákveðið að lána hægri bakvörðinn Ezequiel Schelotto til Chievo út tímabilið.
Schelotto, sem verður þrítugur í maí, hefur verið hjá Brighton í eitt og hálft ár en ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu. Hann hefur spilað 23 leiki fyrir félagið.

Schelotto á einn A-landsleik að baki fyrir Ítalíu og hefur hann spilað fyrir lið á borð við Atalanta, Inter og Sporting CP á ferlinum.

Chievo vermir botnsæti ítölsku deildarinnar og þarf kraftaverk til að halda sér uppi. Schelotto mun berjast við Fabio Depaoli og Paweł Jaroszyński um byrjunarliðssæti.

Samningur Schelotto við Brighton rennur út sumarið 2020 og líklegt að hann verði seldur ódýrt næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.