30.01.19 - 17:02
Elvar Geir Magnússon
Denis Suarez kominn til Arsenal (Staðfest)

Denis Suarez er mættur til Arsenal.

Mynd: Getty Images

Denis Suarez er mættur til Arsenal.

Mynd: Getty Images
Barcelona hefur staðfest að félagið hefur lánað spænska miðjumanninn Denis Suarez til Arsenal út tímabilið. Suarez getur einnig spilað á vængnum.
Áður en gengið var frá láninu skrifaði Suarez undir samning við Börsunga til 2021 en Arsenal er þó með kauprétt á honum.
Arsenal mun borga laun Suarez á meðan hann er hjá félaginu.

Barcelona fékk Suarez frá Villarreal 2016 en þessi 25 ára leikmaður hefur aldrei náð að vinna sér inn fast sæti hjá Börsungum.
Hann hefur alls spilað 71 leik fyrir Börsunga en aðeins átta á yfirstandandi tímabili.
Suarez á að hjálpa Arsenal að tryggja sér Meistaradeildarsæti en liðið er í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar sem stendur.