Fotbolti.net
30.01.19 - 12:30
Hafliði Breiðfjörð

Karlan Grant til Huddersfield (Staðfest)

Karlan Grant.

Karlan Grant.

Canon

Mynd: Getty Images

Huddersfield hefur gengið frá kaupum á framherjanum Karlan Grant en hann kemur til félagsins frá Charlton Athletic.
Grant er 21 árs gamall og skoraði 14 mörk fyrir Charlton á tímabilinu. Hann semur nú við Huddersfield til ársins 2022.

Huddersfield er í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar, 11 stigum frá öruggu sæti. Liðið hefur skorað einu marki færra en Grant á tímabilinu, aðeins 13 mörk.

„Hann er markaskorari af guðs náð," sagði Jan Siewert þjálfari Huddersfield. „Hann kemur með eitthvað öðruvísi í framlínuna hjá okkur."

Fyrsti leikur Grant með liðinu verður gegn Chelsea á laugardaginn.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.