30.01.19 - 18:30
Elvar Geir Magnússon
Matondo frá City til Schalke (Staðfest)

Matondo á ekki leik með aðalliði Manchester City.

Mynd: Getty Images

Hinn átján ára Rabbi Matondo er nýjasti leikmaðurinn sem segir skilið við ensku úrvalsdeildina og heldur til Þýskalands.
Matondo hefur verið seldur frá Manchester City til Schalke fyrir 11 milljónir punda.

Matondo á einn landsleik fyrir Wales og hefur skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við Schalke.
Sagt er að City hafi látið klásúlu um möguleika á að kaupa hann til baka í framtíðinni.
Matondo er vængmaður en hann hefur ekki spilað fyrir aðallið City og fer til Þýskalands í leit að meiri spiltíma.
Mögulegt er að hann keppi gegn Manchester City í Meistaradeildinni en Schalke leikur gegn City í 16-liða úrslitum.

"Announce Matondo" ☑️#s04 #WelcomeRabbi 🔵⚪ pic.twitter.com/nGw4iSjwtg
— FC Schalke 04 (@s04_en) January 30, 2019