Fotbolti.net
30.01.19 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Samúel Kári í Viking (Staðfest)

Samúel Kári Friðjónsson.

Samúel Kári Friðjónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Norska félagið Viking hefur fengið Samúel Kára Friðjónsson á láni frá Valerenga en lánssamningurinn gildir út komandi tímabil í Noregi.
Samúel Kári er 22 ára gamall en hann kom til Valerenga frá Reading á Englandi árið 2016.

Fyrri hlutann á síðasta tímabili var Samúel í lykilhlutverki hjá Valerenga en í kjölfarið var hann valinn í hópinn hjá íslenska landsliðinu fyrir HM í Rússlandi.

Eftir HM datt Samúel Kári hins vegar úr myndinni hjá Valerenga og kom lítið við sögu. Samúel verður núna á láni hjá Viking út þetta tímabil.

„Viking er stórt félag sem ég hlakka til að spila með. Verkefnið sem félagið byrjaði með í fyrra er virkilega spennandi og ég hlakka til að taka þátt í því," sagði Samúel Kári en hann á sjö landsleiki að baki.

Hjá Viking hittir hann fyrir Axel Óskar Andrésson sem kom til félagsins frá Reading á dögunum. Axel var á láni hjá Viking síðari hlutann á síðasta tímabili en hann hjálpaði liðinu þá að vinna norsku B-deildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.