Fotbolti.net
30.01.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Anna Bára til Aftureldingar (Staðfest)

Anna Bára með Júlíusi Ármanni, þjálfara Aftureldingar.

Anna Bára með Júlíusi Ármanni, þjálfara Aftureldingar.

Canon

Mynd: Afturelding

Kvennaboltinn
Anna Bára Másdóttir hefur gengið í raðir Aftureldingar frá ÍR.
„Við erum stolt að tilkynna nýjustu viðbót við hópinn, Anna Bára er miðjumaður á besta aldri og því mikill fengur fyrir liðið," segir í tilkynningu frá Aftureldingu.

„Afturelding er í óða önn að styrkja hópinn sinn og er Anna Bára mikilvægur hlekkur í uppbyggingu liðsins fyrir komandi tímabil."

Anna Bára var á dögunum kjörin knattspyrnu ársins hjá ÍR fyrir árið 2019, en hún hefur leikið 107 meistaraflokksleiki og hefur hún skorað í þeim tvö mörk.

Anna Bára er 25 ára miðjumaður og hefur verið í lykilhlutverki hjá ÍR síðustu ár. Hún fylgir liðsfélögum sínum Evu Rut og Andreu Katrínu yfir í Aftureldingu frá ÍR.

Afturelding hafnaði á síðasta tímabili í fimmta sæti Inkasso-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.