Fotbolti.net
30.01.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aston Villa lánar Hogan til erkifjenda (Staðfest)

Aston Villa lánar Hogan til erkifjenda (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur lánað sóknarmanninn Scott Hogan til erkifjenda sinna og nágranna í Birmingham.

Gríðarlegur rígur er á milli félaganna, en Aston Villa samþykkti þó að lána Hogan út tímabilið.
Hogan var í láni hjá Stoke fyrri hluta tímabilsins, en lánssamningi hans þar var rift vegna þess að hann byrjaði aðeins fimm leiki. Hann skoraði alls tvö mörk í 13 deildarleikjum fyrir Stoke.

Hinn 27 ára gamli Hogan, sem á átta landsleiki fyrir Írland, var keyptur til Villa í janúar 2017 eftir að hann stóð sig vel með Brentford.

Birmingham er í 18. sæti Championship-deildarinnar, átta stigum frá fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.