30.01.20 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hinn eftirsótti Bruno Guimaraes velur Lyon (Staðfest)

Bruno Guimaraes.

Mynd: Getty Images

Bruno Guimaraes.

Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Bruno Guimaraes er að ganga í raðir Lyon í frönsku úrvalsdeildinni.
Þessi 22 ára leikmaður er á förum frá Atletico Paranaense í heimalandinu. Hann hefur verið orðaður við Arsenal, Atletico Madrid og Benfica meðal annars.
„Juninho (yfirmaður íþróttamála hjá Lyon) var lykilmaður í ákvörðun minni að fara til Lyon. Hann sagði mér að ég yrði besti miðjumaður í heimi ef ég myndi koma til Lyon," sagði miðjumaðurinn við Diario AS.
„Ég er mjög ánægður því að í Lyon verð ég mikilvægur."
Lyon er þessa stundina í fimmta sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 32 stig úr 21 leik.
Uppfært 9:30:
Lyon hefur staðfest að leikmaðurinn sé genginn í raðir félagsins.

📝 Bruno Guimaraes à l’OL jusqu’en 2024 !
— Olympique Lyonnais (@OL) January 30, 2020
Communiqué ➡️ https://t.co/4pVgUhqgZL pic.twitter.com/cdQcDJEEuf

Juninho.

Mynd: Getty Images