Fotbolti.net
30.03.19 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Alexander Már aftur í KF (Staðfest)

Alexander fagnar marki með KF 2015.

Alexander fagnar marki með KF 2015.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sóknarmaðurinn Alexander Már Þorláksson er genginn í raðir KF fyrir sumarið.
Alexander Már kemur frá ÍA þar sem hann spilaði síðasta sumar. Hann spilaði einnig fyrir Kára.

Hann kom við sögu í þremur leikjum í inkasso-deildinni og í átta leikjum í 2. deild með Kára. Hann skoraði sex mörk í þessum átta leikjum með Kára.

Sumarið 2017 skoraði hann 17 mörk í 18 leikjum með Kára í 3. deildinni.

Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Alexander mun leika með KF, en hann var hjá liðinu 2015 og átti þá frábært tímabil. Hann spilaði 21 leik og skoraði 18 mörk með liðinu í 2. deild það sumar.

„Alexander er frábær viðbót við liðið sem ætlar sér stóra hluti í sumar. KF hefur verið í basli að skora mörk síðustu tímabil og verður Alexander vonandi svar við því," segir í tilkynningu KF.

KF er að styrkja sig fyrir átökin í 3. deildinni í sumar. Í gær var sagt frá því að Vitor Vieira Thomas hefði samið við félagið.

KF hafnaði í þriðja sæti 3. deildar síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.