Fotbolti.net
30.03.19 - 14:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

England - Byrjunarlið: Lindelöf ekki með - Jói á bekknum

Lindelöf er fjarri góðu gamni.

Lindelöf er fjarri góðu gamni.

Canon

Mynd: Getty Images

Klukkan 15:00 verður flautað til leiks í fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Ole Gunnar Solskjær stýrir Manchester United í fyrsta sinn síðan það var tilkynnt að hann væri búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið. Hann hefur stýrt liðinu til bráðabirgða frá því í desember.

United fær Watford í heimsókn. Það verður hægara sagt en gert fyrir lærisveina Solskjær að klára þann leik þar sem Watford er að eiga mjög gott tímabil.

Victor Lindelöf er ekki með United í dag og byrja Phil Jones og Chris Smalling í hjarta varnarinnar. Juan Mata byrjar einnig. Jesse Lingard og Lukaku eru á bekknum.

Byrjunarlið Man Utd: De Gea, Young, Smalling, Jones, Shaw, Herrera, Matic, Pogba, Mata, Martial, Rashford.
(Varamenn: Romero, Lukaku, Lingard, Pereira, Rojo, Fred, Dalot)

Byrjunarlið Watford: Foster, Janmaat, Britos, Kabasele, Masina, Capoue, Hughes, Doucoure, Pereyra, Deulofeu, Deeney.

Jói Berg á bekknum
Jóhann Berg Guðmundsson byrjar á bekknum hjá Burnley. Jóhann Berg fór snemma heim úr síðasta landsliðsverkefni vegna meiðsla og byrjar á bekknum í dag.

Burnley, sem er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni fær Wolves í heimsókn.

Byrjunarlið Burnley: Heaton, Taylor, Tarkowski, Mee, Bardsley, Hendrick, Cork, Westwood, McNeil, Barnes, Wood.

Byrjunarlið Wolves: Patricio, Boly, Coady, Saiss, Jonny, Moutinho, Dendoncker, Traore, Neves, Cavaleiro, Jonny.

Hér að neðan eru svo byrjunarliðin úr hinum þremur viðureignunum.

Byrjunarlið Brighton: Ryan, Montoya, Dunk, Duffy, Bernardo, Stephens, Propper, Bissouma, Jahanbakhsh, Knockaert, Murray.

Byrjunarlið Southampton: Gunn, Valery, Bednarek, Yoshida, Bertrand, Romeu, Armstrong, Hojbjerg, Ward-Prowse, Redmond, Ings.

Byrjunarlið Crystal Palace: Guaita, Wan-Bissaka, van Aanholt, Dann, Tomkins, Schlupp, Milivojevic, Meyer, Townsend, Zaha, Batshuayi

Byrjunarlið Huddersfield: Hamer, Smith, Kongolo, Hogg, Durm, Bacuna, Mooy, Lowe, Pritchard, Schindler, Grant.

Byrjunarlið Leicester: Schmeichel; Pereira, Evans, Morgan, Chilwell; Ndidi, Gray, Maddison, Tielemans, Barnes; Vardy.

Byrjunarlið Bournemouth: Begovic; Clyne, Mepham, Ake,
Daniels; Brooks Lerma, Gosling Fraser, King, Wilson.

Leikir dagsins:
12:30 Fulham - Man City (Stöð 2 Sport)
15:00 Brighton - Southampton
15:00 Burnley - Wolves
15:00 Crystal Palace - Huddersfield
15:00 Leicester - Bournemouth
15:00 Man Utd - Watford (Stöð 2 Sport)
17:30 West Ham - Everton (Stöð 2 Sport)
Jóhann Berg Guðmundsson.

Jóhann Berg Guðmundsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.