Karim Benzema heldur áfram að skjóta á Olivier Giroud en eins og þekkt er orðið þá lét hann þau fleygu orð falla að Giroud ætti ekki að rugla saman Formúlu 1 og Go-kart.
Sjá einnig:
Benzema gagnrýnir Giroud: Ekki bera saman go-kart og formula 1
Sjá einnig:
Benzema gagnrýnir Giroud: Ekki bera saman go-kart og formula 1
Benzema var beðinn um að bera saman sig og Giroud en báðir hafa þeir leikið landsleiki með franska landsliðinu en Benzema hefur ekki verið í náðinni undanfarin ár á meðan Giroud hefur leitt framlínuna.
Benzema vildi skýra mál sitt en á sama tíma vill hann ekki bakka með ummæli sín: „Ég sagði sannleikan, þetta er svo einfalt," sagði Benzema á Instagram. „Það sem var ekki sagt frá voru ummæli mín um það sem hann færir franska liðinu."
„Það sem fjölmiðlar sögðu frá var samanburðurinn á Formúlunni og Go-kart. Ég stend við þau ummæli, þau eru sannleikurinn."
„Svo ef ég ber mig saman við Ronaldo þá er ég go-kart og hann Formúla eitt, það er einnig sannleikurinn," bætti Benzema við.
Athugasemdir