30.04.18 - 10:35
Magnús Már Einarsson
Allyson Haran í Selfoss (Staðfest)

Allyson Haran og Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, við undirritun samningsins.

Mynd: UMFS

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska varnarmanninn Allyson Haran og mun hún spila með félaginu í Pepsi-deild kvenna í sumar.
Haran, sem er 22 ára gömul, kemur til Selfoss úr bandaríska háskólaboltanum en hún var fyrirliði í sterku liði Wake Forest háskólans. Haran fór í nýliðavalið í bandarísku atvinnumannadeildinni í vetur og var valin með 25. valrétti af liði Seattle Reign.
Hún komst hins vegar ekki í endanlegan leikmannahóp liðsins og kaus í kjölfarið að hefja atvinnumannaferilinn á Íslandi.
„Ally kemur til okkar úr mjög góðu háskólaliði þar sem hún náði eftirtektarverðum árangri sem leikmaður. Hún er góð á boltannn og sterk í loftinu og á eftir að passa vel inn í varnarlínuna okkar. Hún er líka góður karakter og mun hjálpa yngri stelpunum okkar til að þróast enn frekar sem leikmenn,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss.
Selfyssingar hefja leik í Pepsi-deild kvenna á föstudaginn þegar liðið heimsækir Val að Hlíðarenda.
Draumaliðsdeild Toyota
Kemst Allyson í þitt lið? Hún er mætt í Draumaliðsdeild Toyota.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!