Arnar Viðars yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ (Staðfest)

Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson er nýr yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ en þetta var opinberað á fréttamannafundi í dag.
Yfirmaður knattspyrnusviðs er starfsheitið sem KSÍ notar en Guðni Bergsson, formaður KSÍ, hefur barist lengi fyrir því að koma þessari stöðu inn.

„Þetta er mikið framfaraskref fyrir íslenska fótboltann í heild sinni," sagði Guðni á fréttamannafundinum í dag.
Arnar er auk þess þjálfari U21-landsliðs Íslands. Hann er fyrrum landsliðsmaður Íslands. Undanfarin ár hefur hann starfað við þjálfun í Belgíu.
„Ég þakka Guðna og Klöru traustið. Aðdragandinn af þessu hefur verið langur," sagði Arnar á fréttamannafundi í dag. Þar útskýrði hann starfið.
„Ég er að fara í tvöfalt starf. Hér Undanfarin 10-15 ár hefur verið unnið rosalega gott starf innan Knattspyrnusambandsins."
„Þegar við lítum í kringum okkur þá erum við Íslendingar langt á eftir í allri afreksþjálfun. Við þurfum að fara í þá áttina ef við ætlum að búa til fleiri afreks fótboltamenn."
„Ég ætla ekki að fara í klúbbana og segja þeim hvernig þeir eiga að þjálfa leikmennina sína. En ég vil fara í félögin og hlusta á hvernig þeir eru að gera þetta. Það er hægt að gera þetta í samvinnu, við erum að bjóða aðstoð. Í raun er ég starfsmaður KSÍ og þannig aðildarfélagana."
Arnar mun einnig vinna náið með landsliðsþjálfurum sambandsins.
„Stærsta verkefnið innan sambandsins er að reyna að búa til A-landsliðsmenn framtíðarinnar. Þetta snýst um að við getum öll unnið saman," segir Arnar.