Fotbolti.net
30.04.19 - 13:00
Arnar Daði Arnarsson

Einherji ræður spilandi þjálfara og fær til sín tvo aðra (Staðfest)

Einherji ræður spilandi þjálfara og fær til sín tvo aðra (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Einherji sem leikur í 3. deild karla hefur ráðið til sín spilandi þjálfara fyrir sumarið og fengið auk þess til sín tvo erlenda leikmenn til viðbótar.

3. deildin hefst á föstudaginn en fyrsti leikur Einherja er gegn Skallagrími í Borgarnesi á laugardaginn.
Einherji hefur ráðið Akim Armstrong sem spilandi þjálfara en hann kemur frá Trinidad og Tobago. Hann er 30 ára gamall og hefur spilað undarfarin ár í efstu deild í heimalandi sínu. Akim er sóknarmaður og var hann til að mynda þriðji markahæsti leikmaður efstu deildar á síðasta tímabili í Trinidad.

Með Akim koma tveir leikmenn sem eru báðir frá Trinidad. Annars vegar 23 ára markmaður Javon Sample sem hefur spilað í efstu deild í Trinidad undanfarin ár og verið í öllum yngri landsliðum Trinidad. Hinn heitir Jared Bennet og er 27 ára vængmaður. Jared hefur spilað í Finnlandi og undanfarinn ár í efstudeild í Trinidad.

„Við bindum miklar vonir við alla þrjá og hópinn í heild og horfum björtum augum á sumarið," segir í tilkynningu frá Einherja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.