Fotbolti.net
30.04.21 - 19:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sjáðu atvikið: Vestergaard fékk beint rautt - Tella fórnað

Sjáðu atvikið: Vestergaard fékk beint rautt - Tella fórnað
Canon

Mynd: EPA

Jannik Vestergaard, miðverði Southampton, var vikið af velli á 10. mínútu leiks Southampton og Leicester sem nú er í gangi.

Vestergaard var full kaldur á boltanum, missti hann of langt frá sér og Jamie Vardy nappaði boltanum. Vestergaard reyndi að koma í veg fyrir að Vardy kæmist einn á einn gegn markverði heimamanna. Vestergaard náði að koma snertingu á boltann en fór í kjölfarið beint í ökklann á Vardy.
Fimm mínútum seinna var Nathan Tella tekinn af velli fyrir Mohammed Salisu í liði Southampton. Tella hafði skömmu áður fengið mjög gott færi.

Enn fyrr í leiknum skoraði Kyle Walker-Peters mark en hann var fyrir innan eftir sendingu frá Vestergaard.

Staðan í leiknum er 0-0 eftir hálftíma leik.

Smelltu hér til að sjá brotið hjá Vestergaard.
Sjáðu atvikið: Vestergaard fékk beint rautt - Tella fórnað
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.