Fotbolti.net
30.05.17 - 16:33
Elvar Geir Magnússon

Begovic til Bournemouth (Staðfest)

Begovic var hjá Stoke áður en hann fór til Chelsea.

Begovic var hjá Stoke áður en hann fór til Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Bournemouth hefur gert sín fyrstu kaup í sumar en markvörðurinn Asmir Begovic var keyptur frá Chelsea á 10 milljónir punda. Begovic hefur verið varamaður fyrir Thibaut Courtois á Stamford Bridge.
Begovic var lánaður til Bournemouth 2007 þar sem hann lék átta leiki.

„Bournemouth er spennandi metnaðarfullt félag sem hefur allt til alls til að eiga bjarta framtíð. Það var magnað að vera hluti af sigursælu liði Chelsea en nú er rétti tíminn til að fara annað því ég vil spila reglulega,\" segir Begovic.

„Ég er að fara inn í mikilvægan hluta félagsins og vil sýna fólki hvað ég get. Þegar ég ræddi við Eddie Howe vissi ég strax að Bournemouth væri rétta félagið fyrir mig. Ég vil færa liðinu reynslu mína, innan sem utan vallar.\"

Begovic er 29 ára og er landsliðsmaður Bosníu. Hann lék með Stoke í fimm ár áður en hann fór til Chelsea 2015.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.