30.05.17 - 14:30
Elvar Geir Magnússon
Musacchio til AC Milan - Montella framlengir (Staðfest)

Musacchio kom til Villarreal frá River Plate 2009 og lék yfir 275 leiki fyrir spænska liðið.

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur formlega gengið frá kaupum á varnarmanninum Mateo Musacchio frá Villarreal á 18 milljónir evra.
Miðvörðurinn argentínski kláraði læknisskoðun hjá Milan í síðustu viku en ekki var gengið formlega frá kaupunum fyrr en í morgun.
Þessi 26 ára leikmaður skrifaði undir samning til sumarsins 2021.

AC Milan endaði í sjötta sæti ítölsku A-deildarinnar á tímabilinu en félagið sögufræga hefur ekki fangað Ítalíumeistaratitlinum síðan 2011.
Vincenzo Montella, þjálfari AC Milan, hefur þá skrifað undir nýjan samning til 2019.