30.05.17 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Solanke til Liverpool (Staðfest)

Solanke í leik með Vitesse.

Mynd: Getty Images

Solanke í leik með Vitesse.

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur samið við framherjann Dominic Solanke en félagið staðfesti þetta síðdegis í dag.
Hinn 19 ára gamli Solanke gengur í raðir Liverpool þegar samningur hans við Chelsea rennur út í lok næsta mánaðar.
Liverpool þarf að greiða uppeldisbætur fyrir Solanke en talið er að þær hljóði upp á 2-3 milljónir punda.

Solanke lék sinn fyrsta aðalliðsleik með Chelsea árið 2014 en hann hefur fengið fá tækifæri síðan þá. Solanke ákvað að gera ekki nýjan samning við Chelsea heldur róa á önnur mið.
Solanke hefur leikið með yngri landsliðum Englands en hann var á láni hjá Vitesse Arnhem í Hollandi tímabilið 2015-2016 þar sem hann skoraði sjö mörk í 25 leikjum.