Fotbolti.net
30.05.18 - 19:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Newcastle gengur frá kaupum á Dubravka (Staðfest)

Dubravka stóð sig með prýði á lánssamningi hjá Newcastle.

Dubravka stóð sig með prýði á lánssamningi hjá Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle, sem endaði í tíunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, hefur gengið frá kaupum á markverðinum Martin Dubravka.

Dubravka kom á láni til Newcastle frá Sparta Prag í janúar og stóð sig mjög vel. Newcastle hefur nú ákveðið að kaupa hann og hefur Dubravka skrifað undir samning til 2022.

Besti leikur hins 29 ára gamla Dubravka á meðan lánssamningnum stóð var hans fyrsti leikur fyrir félagið, í 1-0 sigri gegn Manchester United á St James\' Park.

Dubravka spilaði 12 leiki fyrir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni og hjálpaði liðinu að enda í tíunda sæti.
Talið er að kaupverðið sé 4 milljónir punda, en Dubravka er fyrsti leikmaðurinn sem Newcastle fær í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.