Fotbolti.net
30.05.18 - 16:50
Magnús Már Einarsson

Terry fer frá Aston Villa (Staðfest)

Terry fer frá Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur staðfest að reynsluboltinn John Terry fer frá félaginu þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði.

Hinn 37 ára gamli Terry kom til Aston Villa frá Chelsea síðastliðið sumar.

Teikn voru á lofti þess efnis að Terry myndi vera áfram hjá Aston Villa ef liðið myndi komast upp í ensku úrvalsdeildina.

Aston Villa tapaði hins vegar 1-0 gegn Fulham í úrslitaleik umspilsins um síðustu helgi og verður því áfram í Championship deildinni.
Líklegt þykir að Terry fari til Kína eða Bandaríkjanna en mörg félög í þessum löndum hafa sýnt honum áhuga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.