30.05.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ariana Calderon til Houston Dash (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ariana Calderon er búin að skrifa undir samning við Houston Dash sem leikur í efstu deild í Bandaríkjunum.
Ariana er 29 ára mexíkóskur framherji sem lék með Val 2017 og Þór/KA í fyrra auk þess að hafa spilað fimm leiki fyrir ÍBV sumarið 2014.
Hún skoraði eitt mark í sextán keppnisleikjum í fyrra en hjá Val gerði hún 7 mörk í 21 leik.
Ariana á 14 landsleiki að baki fyrir Mexíkó og hefur gert í þeim tvö mörk.
Houston Dash er um miðja deild eftir sex umferðir. Liðið er með tíu stig, þremur stigum frá toppliði Utah Royals. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er á mála hjá Utah og þá leikur Dagný Brynjarsdóttir fyrir Portland Thorns sem er í fjórða sæti, með ellefu stig.