Fotbolti.net
30.05.19 - 09:15
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Niang þriðji leikmaðurinn sem Torino selur (Staðfest)

Niang lék 17 leiki fyrir yngri landslið Frakklands en ákvað að velja Senegal og hefur gert 4 mörk í 14 A-landsleikjum.

Niang lék 17 leiki fyrir yngri landslið Frakklands en ákvað að velja Senegal og hefur gert 4 mörk í 14 A-landsleikjum.

Canon

Mynd: Getty Images

Franska félagið Rennes er búið að tryggja sér þjónustu M'Baye Niang sem var hjá félaginu að láni á nýliðnu tímabili.
Niang er 24 ára framherji og skoraði hann 11 mörk í 40 leikjum á tímabilinu. Þetta er í fyrsta sinn sem Niang spilar meira en 30 leiki á einu tímabili og í fyrsta sinn sem hann skorar meira en 10 mörk.

Niang kemur til félagsins frá Torino á Ítalíu og er þetta þriðji leikmaðurinn sem ítalska félagið losar sig við á fyrstu vikum félagaskiptagluggans.

Framherjinn hefur komið víða við þrátt fyrir ungan aldur og lék meðal annars að láni hjá Watford tímabilið 2016-17. Hann spilaði 79 leiki fyrir AC Milan en hefur einnig verið lánaður til Caen, Montpellier og Genoa.

Torino fær 15 milljónir evra fyrir Niang eftir að hafa fengið 6 milljónir fyrir Adem Ljajic og 2.5 milljónir fyrir Danilo Avelar. Markmið félagsins er að vinna sér inn Evrópudeildarsæti á komandi tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.