30.05.19 - 16:22
Ívan Guðjón Baldursson
Norwich fær lánsmann frá Man City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Norwich City er búið að staðfesta komu Patrick Roberts á lánssamningi út tímabilið.
Roberts gengur í raðir Norwich 1. júlí en hann er samningsbundinn Manchester City og hefur verið í fjögur ár. Þrátt fyrir það hefur hann aðeins komið við sögu í þremur leikjum fyrir félagið.
Roberts, fjölhæfur kantmaður fæddur 1997, hefur verið lánaður mikið til Celtic undanfarin ár og hefur gert 18 mörk í 79 leikjum fyrir félagið.
Roberts mun styrkja lið Norwich sem vann Championship deildina í vor og kom sér upp í ensku úrvalsdeildina í fjórða sinn frá aldamótum.
Roberts á 47 leiki að baki fyrir yngri landslið Englands.