Fotbolti.net
30.05.19 - 16:07
Ívan Guðjón Baldursson

Sergio Ramos áfram í Madríd (Staðfest)

Sergio Ramos segist vilja yfirgefa Real Madrid sem sigurvegari. Félagið hefur ekki unnið titil á árinu.

Sergio Ramos segist vilja yfirgefa Real Madrid sem sigurvegari. Félagið hefur ekki unnið titil á árinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrr í dag tilkynnti Real Madrid að varnarmaðurinn Sergio Ramos ætlaði að halda fréttamannafund til að tilkynna framtíðaráform sín.
Ramos var sterklega orðaður við brottför frá Real Madrid, ýmist til annarra stórliða í Evrópu eða í kínverska boltann. Háværasti orðrómurinn sagði fyrirliðann hafa beðið um að yfirgefa Real til að fara frítt til Kína.

„Ég er kominn hingað til að enda allar efasemdir og sögusagnir um framtíð mína. Ég er Madrídingur og vil klára ferilinn hérna," sagði Ramos.

„Ef ég mun yfirgefa þetta félag þá verður það sem sigurvegari. Ég hef aldrei rifist við forsetann (Florentino Perez), hann er mér sem faðir.

„Það er rétt að ég fékk tilboð frá Kína, ég ætla ekki að ljúga, en ég hef ákveðið að vera áfram hérna."


Ramos hefur verið leikmaður Real Madrid síðan 2005 og hefur spilað yfir 600 leiki fyrir félagið. Samningur hans rennur út í júní 2021.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.