Fotbolti.net
30.05.19 - 08:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Spalletti farinn frá Inter (Staðfest)

Spalletti farinn frá Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter er búið að staðfesta að Luciano Spalletti verður ekki áfram við stjórnvölinn hjá félaginu á næsta tímabili þrátt fyrir að hafa náð í Meistaradeildarsæti.
Allar líkur eru á því að Antonio Conte muni taka við og búist er að hann verði kynntur fyrir vikulok.

Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum er Conte búinn að samþykkja þriggja ára samning við félagið.

„FC Internazionale Milano getur staðfest að Luciano Spalletti verður ekki áfram sem aðalþjálfari liðsins. Félagið vill þakka Spalletti fyrir það góða starf sem vann í þágu félagsins," segir í yfirlýsingu frá Inter.

Spalletti hefur verið hjá Inter í tvö ár og tókst honum að koma félaginu í Meistaradeildina tvisvar í röð í fyrsta sinn síðan 2010.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.