Augnablik og Þór/KA báru sigur úr býtum í æfingaleikjum sem fram fóru í dag.
Ungt lið Augnabliks fór til Eyja og vann þar ÍBV, sem leikur í Pepsi Max-deildinni. Augnablik er í 1. deild kvenna. Lokatölur í Eyjum voru 6-2 fyrir Augnablik.
Þór/KA mætir með breytt lið til leiks í Pepsi Max-deild kvenna í sumar. Mexíkóarnir Sandra Mayor og Bianca Elissa Sierra eru farnar. Þór/KA mætti Gróttu úr 1. deild og vann þar góðan 3-0 sigur.
Markaskorarar Þórs/KA í dag voru Margrét Árnadóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir.
ÍBV 2 - 6 Augnablik
Mörk ÍBV: Fatma Kara og Miyah Watford.
Mörk Augnabliks: Viktoria París Sabido 2, Björk Bjarmadóttir 2, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Þórdís Katla Sigurðardóttir.
Þór/KA 3 - 0 Grótta
1-0 Margrét Árnadóttir
2-0 Karen María Sigurgeirsdóttir
3-0 Hulda Ósk Jónsdóttir
Athugasemdir