Fotbolti.net
30.06.17 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Ake til Bournemouth á metfé (Staðfest)

Ake skorar gegn Liverpool.

Ake skorar gegn Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski varnarmaðurinn Nathan Ake er orðinn dýrasti leikmaðurinn í sögu Bournemouth.

Bournemotuh hefur keypt Ake frá Chelsea á 20 milljónir punda.

Fyrra félagsmetið hjá Bournemouth var sett í fyrra þegar Jordon Ibe kom frá Liverpool á 15 milljónir punda.
Hinn 22 ára gamli Ake skoraði þrjú mörk í tólf leikjum á láni hjá Bournemotuh á síðasta tímabili áður en Chelsea kallaði hann til baka.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Bournemouth fær í sumar á eftir Jermain Defoe og Asmir Begovic sem kom einnig frá Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.