30.06.17 - 16:28
Elvar Geir Magnússon
Borini til AC Milan (Staðfest)

Borini er mættur til Ítalíu.

Mynd: Getty Images

Borini er mættur til Ítalíu.

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið AC Milan hefur fengið sóknarmanninn Fabio Borini á lánssamningi frá Sunderland. Milan fær svo kauprétt á leikmanninum.
Borini er 26 ára ítalskur framherji sem hefur síðustu fimm ár leikið í ensku úrvalsdeildinni.
Í tilkynningu frá Milan er Borini lýst sem leikmanni með góðan hraða og góða skottækni. Hann geti skapað svæði fyrir liðsfélaga sína og geti nýst ansi vel á næsta tímabili.
Borini kom til Sunderland frá Liverpool á 14 milljónir punda árið 2014. Eftir fall Sunderland úr ensku úrvalsdeildinni fékk Borini grænt ljós á að fara.
Borini hefur einnig leikið fyrir Chelsea og Swansea.
AC Milan hafnaði í sjötta sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili en stefnir hærra næsta vetur.

#ACMilan have signed @borinifabio29 from @SunderlandAFC on loan with obligation to buy 👉🏻 https://t.co/uVz0058dvL#welcomeBorini pic.twitter.com/Kvv4qUEBwU
— AC Milan (@acmilan) June 30, 2017