30.06.17 - 15:45
Elvar Geir Magnússon
Deulofeu aftur til Barcelona (Staðfest)

Helsta staða Deulofeu er á hægri vængnum.

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur tilkynnt um kaup á Gerard Deulofeu frá Everton og gert við hann tveggja ára samning.
Börsungar nýttu sér klásúlu um að kaupa spænska vængmanninn til baka en hann skrifaði undir samning við Everton sumarið 2015.

Deulofeu fór aftar í goggunarröðina í Guttagarði þegar Yannick Bolasie var keyptur frá Crystal Palace og var í kjölfarið lánaður til AC Milan í hálft tímabil.
Deulofeu er 23 ára og kemur úr hinni frægu La Masia akademíu Barcelona.
Hann er nú með U21-landsliði Spánar á EM í Póllandi og verður líklega í byrjunarliðinu í kvöld þegar Spánn mætir Þýskalandi í úrslitaleik.