Fotbolti.net
30.06.17 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Grayson tekinn við Sunderland (Staðfest)

Grayson tekinn við Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Simon Grayson hefur verið ráðinn stjóri Sunderland í ensku Championship deildinni.

Sunderland hefur verið í leit að nýjum stjóra í kjölfar þess að David Moyes sagði upp störfum eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni í vor.

Derek McInnes, stjóri Aberdeen, ræddi við Sunderland á dögunum en hann ákvað síðan að vera áfram í Skotlandi.
Í kjölfarið leitaði Sunderland til Grayson en hann hættir hjá Preston til að taka við liðinu.

Grayson er 47 ára gamall en hann stýrði Leeds í fjögur ár á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.