Fotbolti.net
30.06.17 - 23:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Huddersfield fær danskan markvörð á láni (Staðfest)

Jonas Lossl er kominn til nýliða Huddersfield

Jonas Lossl er kominn til nýliða Huddersfield

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, Huddersfield hafa fengið danska markvörðinn Jonas Lossl á eins árs lánssamningi frá þýska úrvalsdeildarfélaginu Mainz.

Huddersfield eiga forkaupsréttinn á Lossl eftir næsta tímabil eftir að samkomulag náðist á milli liðanna.

„Lossl hefur alla hæfileika sem maður vill fá frá nútíma markverði,\" sagði David Wagner, stjóri Huddersfield á heimasíðu félagsins.

„Hann er góður að verja skot og er góður með boltann í löppunum. Hann er einnig góður karakter, fjölskyldumaður og talar reiprennandi ensku. Hann mun smella fullkomnlega inn í leikmannahóp okkar.\"

Huddersfield hefur verið að styrkja leikmannahóp sinn á undanförnum dögum en Laurent Depoitre og Aaron Mooy hafa gengið til liðs við félagið og þá hefur Wagner framlengt samning sinn við félagið.

Þá eru nýliðarnir nálægt því að ganga frá kaupum á Tom Ince, leikmanni Derby.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.