30.06.17 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Huddersfield kaupir Mooy og framlengir við stjórann (Staðfest)

Aaron Mooy í baráttunni.

Mynd: Getty Images

Aaron Mooy í baráttunni.

Mynd: Getty Images
Huddersfield hefur keypt miðjumanninn Aaron Mooy frá Manchester City á átta milljónir punda en hann er þar með dýrastur í sögu félagsins.
Kaupverðið gæti hækkað upp í tíu milljónir punda ef Mooy stendur sig vel hjá Huddersfield.
Mooy átti stóran þátt í að koma Huddersfield upp í ensku úrvalsdeildina í vor en hann var öflugur á miðjunni í Championship deildinni.

Stuðningsmenn Huddersfield fengu fleiri gleðifréttir í dag því stjórinn David Wagner hefur framlengt samning sinn um tvö ár.
Hinn 46 ára gamli Wagner tók við Huddersfield í nóvember 2015 og hefur verið á rúllandi samning síðan þá. Hann hefur nú gert tveggja ára samning við félagið.

David Wagner.

Mynd: Getty Images