30.06.17 - 18:21
Hafliði Breiðfjörð
Jón Aðalsteinn hættur með Fylki (Staðfest)

Jón Aðalsteinn ásamt Kristbjörg Helga Ingadóttir aðstoðarmanni sínum með liðið.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Fylkir tilkynnti rétt í þessu að Jón Aðalsteinn Kristjánsson sé hættur þjálfun meistaraflokks kvenna þar sem hann telur sig vera kominn á endastöð með liðið.
Fylkir er í næst neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig. Liðið hefur aðeins unnið einn leik í sumar, í fyrstu umferðinni gegn Grindavík. Liðið tapaði útileiknum í Grindavík í vikunni.
Liðið átti að spila næst gegn FH á sunnudaginn en þeim leik var frestað til 13. ágúst. Þess vegna spila þær ekki fyrr en eftir EM frí mótsins, eða 10. ágúst gegn toppliði Þórs/KA.

Fréttatilkynning Fylkis
Jón Aðalsteinn Kristjánsson þjálfari meistaraflokks kvenna sagði upp starfi sínu hjá Fylki í dag. Hann tók við kvennaliði félagsins síðasta haust. Jón taldi sig vera kominn á endastöð með liðið.
„Við Fylkisfólk þökkum Jóni fyrir hans vinnu og óskum honum velfarnaðar,\" segir Halldór Steinsson formaður meistaraflokks kvenna hjá Fylki.
Félagið mun nú hefja leit að eftirmanni Jóns Aðalsteins.