Fotbolti.net
30.06.17 - 19:30
Elvar Geir Magnússon

Leeds fær þýskan markvörð (Staðfest)

Wiedwald er mættur í Leeds.

Wiedwald er mættur í Leeds.

Canon

Mynd: Getty Images

Þýski markvörðurinn Felix Wiedwald hefur gengið í raðir Leeds United frá Werder Bremen. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning og er fjórði leikmaðurinn sem Leeds kaupir í sumar.

Áður hafði Leeds keypt Mateusz Klich, Hadi Sacko og Madger Gomes en sá síðastnefndi fer í U23-lið félagsins til að byrja.
Wiedwald lék 26 leiki fyrir Brimarbúa í öllum keppnum á síðasta tímabili en liðið hafnaði í 8. sæti Bundesligunnar.

Wiedwald er 27 ára.

Leeds hafnaði í sjöunda sæti Championship-deildarinnar síðasta vetur en liðið rétt missti af sæti í umspilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.