30.06.17 - 08:43
Magnús Már Einarsson
Sverrir Ingi til Rostov (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rússneska félagið FC Rostov hefur keypt íslenska landsliðsmanninn Sverri Inga Ingason í sínar raðir frá spænska félaginu Granada.
Sverrir kom til Granada frá Lokeren í janúar en fyrrnefnda félagið féll úr spænsku úrvalsdeildinni í vor.
Sverrir var með klásúlu í samningi Granada um að mega fara á tvær mlljónir evra og Rostov hefur nú keypt hann. Mörg önnur félög hafa sýnt Sverri áhuga að undanförnu en hann var meðal annars orðaður við Huddersfield og Leeds á Englandi.
Hinn 24 ára gamli Sverrir skrifaði undir þriggja ára samning við Rostov með möguleika á árs framlengingu.

„Ég er ánægður að fá þetta tækifæri að spila fyrir Rostov. Þegar ég heyrði af áhuga þeirra þá fór ég á netið og skoðaði borgina. Ég hef bara heyrt góða hluti um Rostov og hlakka til að búa þar,\" sagði Sverrir eftir undirskrift.
FC Rostov endaði í 6. sæti í rússnesku deildinni á síðasta tímabili en þá tók liðið einnig þátt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Rostov endaði í 3. sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni og fór yfir í Evrópudeildina þar sem liðið tapaði gegn Manchester United.

Big congrats to Sverrir Ingason on his transfer to FC Rostov 🇮🇸👌⚽️ #TeamTotalFootball pic.twitter.com/uRG4MEoNsq
— Total Football (@totalfl) June 30, 2017