Fotbolti.net
30.06.18 - 09:30
Ingólfur Páll Ingólfsson

Lewis Baker lánaður frá Chelsea til Leeds (Staðfest)

Baker hefur spilað með unglingalandsliðum Englands.

Baker hefur spilað með unglingalandsliðum Englands.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur fengið Lewis Baker til liðs við sig á láni frá Chelsea.
Miðjumaðurinn gengur til liðs við Leeds á láni út tímabilið og er fyrsti leikmaðurinn sem Leeds fær til liðs við sig í sumarglugganum.

Þessi 23 ára gamli leikmaður er uppalinn í akademíu Chelsea en hefur að mestu leyti verið á láni undanfarin ár. Hann eyddi öllu síðasta tímabili á láni hjá Middlesbrough þar sem hann spilaði 14 leiki í öllum keppnum og skoraði tvö mörk.

Þá hefur Baker reglulega verið valinn í unglingalandslið Englands og skoraði meðal annars átta mörk í sautján leikjum fyrir U21 árs landsliðið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.