30.06.18 - 14:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Norwich bætir við sig tveimur leikmönnum (Staðfest)

Pukki og Raul fagna marki fyrir Schalke.

Mynd: Getty Images

Norwich hefur fengið tvo leikmenn til liðs við félagið í dag, þá Teemu Pukki og Ben Marshall.
Teemu Pukki var liðsfélagi Hjartar Hermanssonar hjá Bröndby en hann kemur á frjálsri sölu til félagsins. Þessi 28 ára gamli landsliðsmaður Finnlands skrifar undir þriggja ára samning sem tekur gildi 1.júlí.
Auk Bröndby hefur Pukki spilað með Helsinki, Schalke og Sevilla auk Celtic.Pukki hjálpaði Bröndby að sigra danska bikarmeistaratitilinn í vor en félagið vann þann titil síðast árið 2008.
Þá hefur félagið einnig samið við Ben Marshall sem kemur til liðs við félagið frá Wolves. Marshall skrifar undir fjögurra ára samning við Kanarífuglana.
Þessi 27 ára gamli leikmaður getur bæði spilað á kantinum sem og í bakverðinum en hann eyddi síðari hluta síðasta tímabils á láni hjá Millwall. Hann spilaði alls 25 leiki á síðasta tímabili og skoraði þrjú mörk.