30.06.18 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Politano til Inter (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Inter er búið að staðfesta komu Matteo Politano til félagsins eftir frábært tímabil hjá Sassuolo.
Politano er 24 ára gamall kantmaður sem gerði 10 mikilvæg mörk í fallbaráttunni.
Napoli fylgdist grannt með Politano og ætlaði að kaupa hann en nú er ljóst að Inter vann kapphlaupið.
Inter fær Politano lánaðan út tímabilið og borgar 7 milljónir evra fyrir lánið. Félagið hefur svo kaupmöguleika næsta sumar fyrir 20 milljónir.
„Það er stórkostlegt að vera kominn hingað, ég er með gæsahúð! Ég get ekki beðið eftir að æfa með nýju félögunum,\" sagði Politano um skiptin.