30.06.18 - 17:48
Ívan Guðjón Baldursson
Wolves kaupir Bonatini og Vinagre (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Úlfarnir eru komnir aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa unnið Championship deildina í vor.
Þeir hafa verið afar duglegir við að styrkja leikmannahópinn sinn í sumar og voru að bæta tveimur mönnum við sem voru á láni hjá félaginu síðasta tímabil.
Sóknarmaðurinn Leo Bonatini átti magnað tímabil á láni frá Al-Hilal og var einn af bestu mönnum Wolves. Vinstri bakvörðurinn Ruben Vinagre, á láni frá Mónakó, fékk ekki mörg tækifæri en þótti standa sig afar vel þegar á reyndi, þrátt fyrir að vera aðeins nítján ára gamall.
Báðir leikmenn voru með kaupákvæði í lánssamningunum og ákvað Wolves að nýta sér ákvæðin.