Fotbolti.net
30.07.16 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kevin Gameiro til Atletico Madrid (Staðfest)

Kevin Gameiro til Atletico Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid er búið að staðfesta kaupin á franska sóknarmanninum Kevin Gameiro sem er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við stórveldið.

Gameiro er 29 ára gamall og hefur leikið fyrir Sevilla undanfarin þrjú ár, en þar áður lék hann fyrir Strasbourg, Lorient og PSG í Frakklandi.
Atletico greiðir 42 milljónir evra fyrir Gameiro sem hefur gert 39 mörk í 92 deildarleikjum með Sevilla.

Gameiro mun berjast við menn á borð við Fernando Torres og Antoine Griezmann um byrjunarliðssæti hjá einu af bestu félögum veraldar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.