30.07.19 - 17:37
Elvar Geir Magnússon
Alfons í Breiðablik (Staðfest)

Alfons er kominn aftur í Kópavoginn.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Bakvörðurinn Alfons Sampsted hefur gengið í raðir Breiðabliks. Þessi 21 árs leikmaður hefur verið í Svíþjóð en hann kemur frá Norrköping.
Breiðablik hefur ekki unnið leik síðan 22. júní en er samt sem áður í öðru sæti Pepsi Max-deildarinnar. Miklar hræringar hafa verið á leikmannahópi liðsins í júlíglugganum.

Af blikar.is:
Breiðablik og Norrköping hafa náð samkomulag um að Alfons Sampsted komi á lán til Breiðabliks og spili í Pepsi Max deildinni út tímabilið.
Alfons sem er 21 árs gamall er alinn upp hjá okkur en fór til Svíþjóðar árið 2017.
Að láni loknu mun Alfons aftur fara til Norrköping þar sem hann er samningsbundin út árið 2020.
Alfons lék fyrir Landskróna á láni í sænsku Superettunni í fyrra og stóð sig gríðarlega vel áður en hann fór aftur til Norrköping.
Alfons á að baki 27 leiki með meistaraflokki Blika og skorað eitt mark.
Alfons ætti að ná næsta leik með Blikaliðinu sem er gegn KA-mönnum á Kópavogsvelli 7. ágúst n.k.
Alfons á 46 leiki að baki með yngri landsliðum Íslands og mun án efa styrkja öflugan leikmannahóp Breiðabliks sem er í toppbaráttu bæði í Mjólkurbikarkeppni KSÍ og Pepsi Max deildinni.
Við bjóðum Alfons velkominn aftur í Kópavoginn í sumar!