Fotbolti.net
30.07.19 - 19:39
Brynjar Ingi Erluson

Jill Ellis hættir með bandaríska kvennalandsliðið (Staðfest)

Jill Ellis er hætt með bandaríska kvennalandsliðið

Jill Ellis er hætt með bandaríska kvennalandsliðið

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Jill Ellis hættir með bandaríska kvennalandsliðið í október en hún staðfesti það á blaðamannafundi í dag.
Ellis tók við landsliðinu árið 2014 og gerði liðið að heimsmeisturum bæði árið 2015 og í sumar.

Hún er fyrsta konan sem vinnur tvo heimsmeistaratitla sem þjálfari en hún var valin þjálfari ársins af FIFA árið 2016.

„Þetta er rétti tíminn til að hætta með liðið. Þegar ég tók við liðinu þá var ég með það í huga að vera til ársins 2019, þannig þetta passar við þá tímasetningu," sagði Ellis.

Hún hefur unnið 102 leiki, gert 7 jafntefli og tapað 18 leikjum með liðið en síðustu leikir hennar verða í október er liðið ferðast um Bandaríkin og spilar meðal annars við Írland og Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.