30.07.19 - 10:39
Arnar Daði Arnarsson
Josep Diez í Fjarðabyggð (Staðfest)

Úr leik Fjarðabyggðar í sumar.

Mynd: Daníel Þór Cekic

Úr leik Fjarðabyggðar í sumar.

Mynd: Daníel Þór Cekic
Spænski miðjumaðurinn Josep Diez hefur gert félagaskipti yfir í Fjarðabyggð frá Aftureldingu. Þar með er ljóst að Josep Diez var í Aftureldingu í ellefu daga en hann gekk til liðsins fyrr í júlí mánuði.
Afturelding fékk Josep til sín til að leysa af hólmi Esteve Monterde sem hóf tímabilið með Aftureldingu. Josep kom hinsvegar ekkert við sögu í leik hjá Aftureldingu í Inkasso-deildinni og klárar tímabilið með Fjarðabyggð í 2. deildinni.

Diez er 24 ára gamall og kom á frjálsri sölu til Aftureldingar en hann var síðast á mála hjá Vilafranca í spænsku D-deildinni.
Fjarðabyggð er í 8. sæti 2. deildarinnar með 18 stig, sex stigum á eftri Vestra sem er í 2. sæti deildarinnar og sjö stigum á undan Kára sem er í 11. sætinu með 11 stig.
Josep Diez gæti leikið sinn fyrsta leik með Fjarðabyggð gegn Völsungi annað kvöld.