30.07.19 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Krasnovskis aftur í Leikni F. (Staðfest)

Mynd: Úr einkasafni

Mynd: Úr einkasafni
Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið Mykolas Krasnovskis í sínar raðir frá Sindra.
Mykolas er sóknarmaður frá Litháen en hann skoraði tvö mörk í tíu leikjum með Leikni F. síðari hlutann á síðasta tímabili.
Í sumar hefur Mykolas skorað fimm mörk í þrettán leikjum með Sindra í 3. deildinni.
Mykolas er nú kominn aftur til Leiknis en Fáskrúðsfirðingar eru á toppnum í 2. deildinni.
Mykolas gæti spilað með Leikni F. annað kvöld þegar liðið mætir Dalvík/Reyni.