Fotbolti.net
30.07.19 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool lánar Woodburn í ensku C-deildina (Staðfest)

Ben Woodburn í leik með Liverpool

Ben Woodburn í leik með Liverpool

Canon

Mynd: Getty Images

Evrópumeistarar Liverpool lánuðu í dag velska landsliðsmanninn Ben Woodburn til Oxford United í ensku C-deildinni.
Woodburn er aðeins 19 ára gamall en hann er uppalinn hjá Liverpool en hann er yngsti markaskorarinn í sögu félagsins.

Hann var lánaður til Sheffield United á síðustu leiktíð en lék aðeins 7 leiki og ákvað Liverpool að kalla hann til baka.

Hann spilaði með U23 ára liði Liverpool síðari hluta tímabils en nú er hann farinn til Oxford United í C-deildinni.

Woodburn spilaði með aðalliði Liverpool á undirbúningstímabilinu en nú er hann farinn á lán til Oxford United í C-deildinni og verður hann þar út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.