Fotbolti.net
30.07.19 - 17:25
Brynjar Ingi Erluson

Patrick Cutrone til Wolves (Staðfest)

Patrick Cutrone er mættur í ensku úrvalsdeildina

Patrick Cutrone er mættur í ensku úrvalsdeildina

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves er búð að ganga frá kaupum á ítalska framherjanum Patrick Cutrone frá AC Milan. Wolves staðfesti þetta í kvöld.
Cutrone er 21 árs gamall og uppalinn hjá Milan en hann spilaði 90 leiki þar og skoraði 27 mörk á þremur tímabilum.

Hann lék sinn fyrsta A-landsleik á síðasta ári en hann er nú mættur í ensku úrvalsdeildina.

Wolves kaupir Cutrone á 16 milljónir punda og gerir hann langtímasamning við félagið.

Þetta er fjórði leikmaðurinn sem Wolves fær í sumar en Raul Jimenez var keyptur frá Benfica, Leander Dendoncker frá Anderlecht og þá var Jesus Vallejo fenginn á láni frá Real Madrid.

„Ég er mjög ánægður að vera hérna því félagið lagði allt í að fá mig. Það er frábært tækifæri að fá að spila í ensku úrvalsdeildinni með Wolves og ég get ekki beðið eftir því að byrja," sagði Cutrone.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.