30.07.19 - 09:42
Arnar Daði Arnarsson
Þórhildur Þórhalls lánuð í Breiðablik (Staðfest)

Þórhildur hefur skipt um lið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórhildur hefur skipt um lið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hin unga og þrælefnilega Þórhildur Þórhallsdóttir sem er fædd árið 2003 hefur verið lánuð í Breiðablik frá HK/Víkingi.
Þórhildur hefur leikið með HK/Víkingi í Pepsi Max-deildinni undanfarin tvö tímabil. Hún lék 15 leiki með liðinu í fyrra og skoraði eitt mark og það sem af er sumri hefur hún skorað tvö mörk í 10 leikjum með liðinu.

Nú hefur Þórhildur hinsvegar farið á lán til Breiðabliks sem er í baráttu við Val um Íslandsmeistaratitilinn. Það vegur líklega þungt í þeirri ákvörðun að faðir Þórhildar, Þórhallur Víkingsson var rekinn úr starfi sem þjálfari HK/Víkings fyrr í júlí.
Þórhildur hefur ekki verið í leikmannahópi HK/Víkings í síðustu tveimur leikjum. Þá hefur eldri systir Þórhildar, Ísafold einnig gengið í raðir Breiðabliks en hún hefur í kjölfarið verið lánuð í Augnablik í Inkasso-deildinni. Ísafold er fædd árið 2003.
HK/Víkingur situr á botni Pepsi Max-deildarinnar með sjö stig á meðan Breiðablik er á toppi deildarinnar með 34 stig.