30.07.19 - 12:13
Arnar Daði Arnarsson
Victor da Costa í Njarðvík (Staðfest)

Victor da Costa í leik með Magna árið 2017.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kantmaðurinn, Victor da Costa hefur gengið í raðir Njarðvíkur í Inkasso-deildinni frá KH.
Victor da Costa gekk í raðir KH frá Magna fyrir tímabilið en hann hafði leikið með Magna frá árinu 2014. Victor sem kemur frá Frakklandi lék fimm leiki með Magna í Inkasso deildinni síðasta sumar.

Hann lék níu leiki með KH í sumar í 3. deildinni og í Mjólkurbikarnum. Nú hefur hann hinsvegar gengið í raðir Njarðvíkur í Inkasso-deildinni en liðið situr í fallsæti deildarinnar með 10 stig.
Njarðvík mætir Keflavík í nágrannaslag í Inkasso-deildinni í kvöld og er Victor orðinn löglegur með Njarðvíkingum fyrir þann leik.