Fotbolti.net
30.07.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Mega búast við tilboðum í Rayan

Mega búast við tilboðum í Rayan
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski táningurinn Rayan er undir smásjám margra stórra liða í Evrópu og Bournemouth býr sig undir tilboð í þennan 19 ára strák sem kom til félagsins í janúar.

Enska götublaðið Sun segir að augu Real Madrid, Bayern München, PSG, Arsenal og Liverpool beinist að Rayan.
Kroupi frá næstu mánuðina - Mörg stórlið á eftir honum
TENGT EFNI

Kroupi frá næstu mánuðina - Mörg stórlið á eftir honum

Sagt er að Madrídarliðið sé mjög spennt fyrir sóknarleikmanninum unga og telji að hann passi fullkomlega í leikstílinn. Þessi fyrrum leikmaður Vasco da Gama býr yfir hraða, einstaklingsgæðum og sóknarógn.

Áhuginn á Rayan eykst hratt en Sun segir að það sé engin pressa hjá Bournemouth að selja hann. Tilboð í kringum 85 milljónir punda myndu þó fá forráðamenn félagsins til að skoða stöðuna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.