Fotbolti.net
30.07.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Al Hilal gæti gert tilboð í Grealish

Al Hilal gæti gert tilboð í Grealish
Canon

Mynd: EPA

TalkSport segir að Al-Hilal í Sádi-Arabíu gæti gert tilboð í Jack Grealish, leikmann Manchester City.

Grealish fór ekki með City í æfingaferð til Hong Kong og Seúl en meiðsli voru gefin upp sem ástæða. Það er þó talið ólíklegt að hann verði hluti af áætlunum Enzo Maresca, nýs stjóra City.
Grealish fór ekki með flugvélinni
TENGT EFNI

Grealish fór ekki með flugvélinni

Al Hilal hefur þegar keypt Crysencio Summerville frá West Ham og Grealish er nú á radarnum.

Grealish var á láni hjá Everton síðasta tímabil en félagið ákvað að nýta ekki 50 milljóna punda kauprétt.

Maresca, sem hefur tekið við af Pep Guardiola, hefur unnið með Grealish þegar hann var aðstoðarmaður á Etihad leikvangnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.